Log In now to add this GigaPan to a group gallery.
Log In now to add this GigaPan to a gallery.
About This GigaPan
Toggle- Taken by
-
Völundur Jónsson
- Explore score
- 28
- Size
- 0.85 Gigapixels
- Views
- 1143
- Date added
- August 21, 2011
- Date taken
- August 21, 2011
- Categories
- Galleries
- Competitions
- Tags
- Ólafsfjörður, fjallabyggð
- Description
-
Ólafsfjörður er bær við samnefndan fjörð utarlega á Tröllaskaga í sveitarfélaginu Fjallabyggð. Bærinn byggir afkomu sína að mestu á sjávarútvegi en landbúnaður er stundaður í dalnum þar inn af. Þann 1. janúar 2008 voru íbúar Ólafsfjarðar 881 samkvæmt Hagstofu Íslands.
Þéttbýli fór að myndast í Ólafsfjarðarhorni undir lok 19. aldar og varð það að löggiltum verslunarstað 20. október 1905. Árið 1917 var nafni hreppsins breytt í Ólafsfjarðarhrepp, en fram til þess hafði hann heitið Þóroddsstaðahreppur, eftir bænum Þóroddsstöðum sem er í miðri sveit. Kaupstaðarréttindi fékk Ólafsfjörður árið 1945. Í janúar 2006 samþykktu Ólafsfirðingar og Siglfirðingar að sameina bæina tvo í eitt sveitarfélag. Sameiningin gekk í gildi 11. júní 2006 að afloknum sveitarstjórnarkosningum 27. maí. Í kosningu um nýtt nafn sem fór fram samhliða varð tillagan Fjallabyggð ofaná.
Heilsársvegir að Ólafsfirði liggja annars vegar frá Dalvík í gegnum Múlagöng, en til vesturs liggur vegur frá Ólafsfirði yfir Lágheiði yfir í Fljót sem oft er ófær á veturna. Árið 2010 komst síðan á heilsársvegtenging við Siglufjörð með Héðinsfjarðargöngum sem voru vígð 2. október.

fetching snapshots...

Lara Stefansdottir (August 22, 2011, 01:33PM )
Glæsilegt hjá þér!!! Virkilega gaman að sjá þetta, endilega leyfðu mér að sjá þig nota græjuna ef þú verður aftur í nágrenninu ég sé að ég hef verið heima þegar þú varst að þessu, þarna er fíni bíllinn minn;-)